Björg­vin harð­orður í garð ung­verskra stjórn­valda: „Ég ætti að vera laus“

Björg­vin Páll Gústavs­son, lands­liðs­mark­vörður lét ung­versk stjórn­völd heyra það í Kast­ljósi í kvöld.

Mark­maðurinn bíður niður­stöðu úr PCR prófi eftir að hafa greinst með Co­vid-19 á hrað­prófi, degi eftir að hann var mældur með mót­efni eftir að hafa jafnað sig af veirunni.

„Þetta eigin­lega stenst ekki lands­lög, að setja mig í ein­angrun í Ung­verja­landi. Ég ætti að vera laus en reglur mótsins ná yfir lands­lögin, þannig að. hypot­heti­cally gæti ég mætt á morgun sem á­horf­andi en ekki sem leik­maður en við sjáum til í kvöld,“ sagði Björg­vin í sam­tali við Kast­ljós í kvöld.

„Við erum að krefjast svara. Nikola Kara­batic spilaði gegn leikinn gegn okkur á já­kvæðu prófi og hann smitaðist á milli jóla og ný­árs. Það eru virk smit, ó­virk smit, CD gildi sem virðast detta upp og niður og þetta er patt­staða sem við erum komin í. Ég set reglurnar í upp­nám með að vera kominn í ein­angrun aftur á sjöunda degi eftir að hafa spilað á mótinu. Ég reyni að taka þessu með jafnaðar­geði og skemmta fylgj­endum a Insta­gram.“

Björg­vin tók undir fyrri gagn­rýni Guð­mundar Guð­munds­sonar, þjálfara lands­liðsins, í garð móts­haldara, þegar hann var spurður hvort að móts­haldarar væru búnir að missa tökin.

„Ég held að þeir hafi misst tökin þegar við löbbum hérna inn. Við förum í okkar búbblu annan janúar á Grand Hótel, þar var allt til fyrir­myndar. Á degi eitt labbaru hérna inn og mætir túr­istum, full hótel af túr­istum, grímu­laus og ekki að spritta sig, í bland við hand­bolta­lið. Við reyndum að spritta okkur, notuðum grímur og hanska í mat­salnum en það­kom engum á ó­vart þegar fyrstu smitin komu upp,“ sagði Björg­vin.