Tónlistarmaðurinn Björgvin Halldórsson birti áhugavert innlegg í hinum fjölmenna Facebook-hópi Matartips í gær. Í hópnum, sem telur 46.700 meðlimi, skiptast Íslendingar á ýmsum gagnlegum upplýsingum um mat og veitingastaði.
Björgvin virðist glíma við ákveðið vandamál því hann segir í innleggi sínu:
„Nýmjólk keypt og fer í kekki 2 dögum fyrir síðasta söludag. Kemur oftar fyrir en ekki. Skil ekkert í þessu.“
Björgvin fær ýmsar ábendingar, bæði gagnlegar og ógagnlegar, við innleggi sínu og velta flestir því fyrir sér hvort hitastigið í ísskápnum sé rétt. Einn segist hafa lent í þessu en vandamálið horfið eftir að viðkomandi hætti að geyma mjólkina í hurðinni.
Í einni athugasemd segir:
„Sko ef þetta er oft að koma fyrir er auðvitað mikilvægt að horfa heim fyrst. 1. Ertu að flytja vöruna strax úr kæli í kæli eða líður lengri tími þar sem varan situr í bílnum eða á borði. 2. Er hitastig ísskápsins í lagi. 3. Er verið að opna ísskápinn oft á dag og hann jafnvel skilinn eftir opin. Ef þú ert viss að allt þetta á ekki við er hægt að hafa samband við framleiðanda.“