Í dag er Safetravel dagurinn og verða félagar úr Slysavarnafélaginu Landsbjörg á ferðinni á fjölförnum stöðum um land allt og taka tali ökumenn og farþega. aðstoðarmenn þeirra og spjalla um hlutverk aðstoðarbílstjórans. Sérstök áhersla í ár er á hlutverk farþega í framsæti bifreiða.
Félagar í björgunarsveitum og slysavarnadeildum verða á alls 50 stöðum í dag.
Allt árið um kringt rekur Slysavarnafélagið Landsbjörg verkefnið Safetravel í samstarfi við aðila í ferðaþjónustunni. Kjarninn í því verkefni er vefurinn www.safetravel.is með það markmið að miðla fróðleik og upplýsingum til ferðamann. Þar geta ferðamenn einnig skilið eftir rafrænar ferðaáætlanir sem vaktaðar eru af starfsmönnum Safetravel og geta skipt sköpun við leit og björgun, lendi viðkomandi í ógöngum. Mikill metnaður er lagður í náið samstarf við ferðaþjónustuna og aðra aðila í þróun nýrra leiða til að ná betur til innlendra og erlendra ferðamann við miðlun mikilvægara upplýsinga, til að auka öryggi okkar allra.
Þetta er 15. sumarið þar sem félagið heldur úti Hálendisvaktinni, en það verkefni stendur fram í ágúst. Markmiðið með verkefninu er að sinna forvörnum með því að leiðbeina og aðstoða ferðamenn ásamt því að stytta viðbragð björgunarsveita komi til útkalla á hálendinu. Á hverju sumri taka um 200 manns þátt í verkefninu og sinna rúmlega 2.000 útköllum, margir sjálfboðaliðar nýta þannig hluta af sumarfríinu sínu og standa vaktina í góðum félagsskap í viku í senn.
Hálendisvaktin er staðsett á 3 stöðum á hálendinu: Landmannalaugum, Nýjadal á Sprengisandi og Drekagili Norðan Vatnajökuls • Í verða hópar einnig með vakt í Skaftafelli • Forvarnir og upplýsingagjöf til ferðamanna er stór hluti af verkefninu.