Björgunar­sveitin búin að ná einum hi­nna látnu upp úr vatninu

Kafarar hafa náð einum þeirra sem lést í flug­slysinu í Ölvu­s­vatns­vík á fimmtu­dag upp úr Þing­valla­vatni og eru nú á leið til lands að sögn sjónar­votta. Afar erfiðar að­stæður er á staðnum, mikið frost og ís­myndun á vatninu. Þetta kemur fram í frétt Frétta­blaðsins.

Myndin hér að ofan er frá undirbúningi aðgerða fyrr í dag.

Frétta­blaðið greindi frá því skömmu eftir há­degi að kafarar væru farnir að undir­búa köfun í Þing­valla­vatni eftir að fresta þurfti að­gerðum í morgun vegna að­stæðna en mikið krap er á vatninu.

Frá lokaundirbúningi aðgerða fyrr í dag.
Fréttablaðið/Anton Brink

Um­fangs­mikilar að­gerðir hafa staðið yfir við vatnið undan­farna daga, en það er flókin að­gerð að sækja lík mannanna sem létust í flug­slysinu fyrir helgi.

Þegar því verki er lokið verður reynt að ná flaki vélarinnar upp líka.