Björguðu ketti í Hafnarfirði: Risastórt sár á höfði, tennur brotnar og alveg búinn á því

Starfsmenn Dýraspítalans í Garðabæ fengu til sín kött á föstudagskvöld eftir að árvökull dýravinur kom auga á hann á hesthúsasvæði Sörla í Hafnarfirði. Viðkomandi fóðraði hann þannig að hægt væri að ná honum en kisi var ómerktur með öllu og ógeltur en þó ekki villiköttur.

Fjallað er um þetta á Facebook-síðu dýraspítalans.

Eins og myndin hér að neðan gefur til kynna var kötturinn algjörlega búinn á því og með ógnarstórt sár á höfði sem hefur verið opið lengi. Sárið nær niður að beini að hluta og er sýkt.

Athygli er vakin á því að myndin neðst í fréttinni getur vakið óhug.

„Dýrin eru seig og reyna að halda lífi og ná sér í mat og það er alveg ljóst að þessi hefur einhvern tíma áður komið nærri fólki og lært að treysta því þó ekki hafi hann haft ástæðu til þess upp á síðkastið. En frosthörkur og veikindi taka sinn toll. Gróandi er hægur í kulda og vanlíðan er mikil með svona áverka,“ segir í færslunni.

Þá kemur fram að allar vígtennur kattarins hafi verið brotnar og hann átt erfitt með að veiða af þeim sökum. Kötturinn var því upp á náð annarra kominn undir það síðasta og feginn að vera kominn inn í hlýjuna.

„Hann leyfir alla snertingu og meðhöndlun og er nú hjá okkur að gróa sára sinna, ljúfur en alveg búinn á því, brostinn í augum og svangur út í eitt, horaður og meiddur.“

Bent er á það í færslunni að það sé lögboðin skylda að örmerkja ketti og að tryggja að þeir komist í skjól og í mat, líka hesthúsakettina.

„Margir kettir eiga gott líf með sínu fólki í hesthúsunum allt árið um kring, eiga greiðan aðgang alltaf í skjól og mat og félagsskap þar. Öðruvísi má það ekki vera. Það er vanræksla ef öðruvísi er. Við þökkum þeim aðila sem hafði samband og var ekki sama um hann.“

Hægt er að sjá myndband af kisa á Facebook-síðu Dýraspítalans í Garðabæ.