Björgólfur thor flýgur upp forbes listann

Björgólf­ur Thor Björgólfs­son fjár­fest­ir hefur flogið upp lista For­bes yfir rík­ustu menn í heimi að undanförnu. Nýr listi var gef­inn út í dag og þar fer Björgólfur upp um 99 sæti, úr 1.215. sæti í fyrra upp í 1.116 sæti í dag. Mbl.is greinir frá.

Í Forbes kemur fram að auður hans sé met­inn á 2,1 millj­arð Banda­ríkja­dala eða um 254 milljarða ís­lenskra króna á gengi dags­ins í dag. Þá er tekið fram að Björgólf­ur eigi hlut í fjar­skipta­fyr­ir­tæk­junum Play frá Póllandi og WOM frá Síle. Hann hefur einnig fjár­fest í raf­mynt­um og sprota­fyr­ir­tækj­um á borð við Zwift, BeamUp og Deli­veroo. Forbes segir einnig að Björgólfur Thor sé eini milljarðamæringur Íslands í Bandaríkjadölum talið.

Fréttablaðið greinir frá því að Björgólfur Thor hafi efnast á því að stofna brugghúsið Bravo í Rússlandi og selja það til Heineken árið 2002. Árið 2006 setti Forbes hann í 350. sætið yfir auðugasta fólk í heimi og taldi virði eigna hans vera 2,2 milljarða dollara.

Þá rifjar Forbes upp að Björgólfur Thor hafi tapað nánast öllum auðæfum sínum í fjármálahruninu árið 2008 og hafi þurft að leita leiða til þess að greiða niður skuldir sínar, sem námu meira en einum milljarði dollara.