Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri VG, dvelur nú á sóttkvíarhóteli eftir að hafa komið til landsins frá Svíþjóð. Björg Eva greinir frá þessu í býsna kraftmiklum pistli á Facebook-síðu sinni.
„Dagur eitt á sóttkvíarhóteli. Komin heim en samt ekki. Frekar sérstök upplifun. Kom á hótelið síðdegis og var þar mikill viðbúnaður. Við vorum tíu með Stokkhólmsrútunni úr Keflavík. Sex máttu stíga inn í einu og var miðað á okkur sprittbrúsum eins og byssu og hleypt af. Fengum svo geimverufylgd hver á sitt herbergi, til þess að við kæmum ekki við neitt,“ segir Björg Eva.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og kollegi Bjargar Evu í VG er eins og kunnugt er æðsti yfirmaður heilbrigðismála hér á landi og ber hún ábyrgð á þeim ákvörðunum sem teknar eru í tengslum við sóttvarnir hér á landi. Ef marka má pistil Bjargar Evu er hún ekkert yfir sig hrifin af því að þurfa að dvelja á sóttkvíarhóteli.
„Sjálf fékk ég ósjálfrátt frekjukast og heimtaði að fá að fara í göngutúr samdægurs. Því var ekki lofað, en viti menn undir kvöld kom önnur geimvera og sótti mig í viðrun. Fylgdi mér alla leið út svo ég snerti ekki neitt, en þá var ég látin laus í hálftíma. Fæ kannski viðrun aftur á morgun. Það er mikill munur,“ segir Björg Eva sem líkir aðstæðunum við það að vera fangi. Það sé svolítið spennandi að vera „svona hættulegur fangi“ eins og hún orðar það.
„Hér er mikil áhersla lögð á að fólk haldi sig inni á herbergi alltaf. En ég frétti hjá frænku minni að í Noregi þætti sérstök skemmtun að komast á sóttkvíarhótel, því þar væri einangrað eftir hópum, sem fengju að vera hver á sínum bar. Og þar er fólk að spila dart og bridds og skemmta sér og kynnast. Ég hef nú bara kynnst tveimur fangavörðum í dag og ekki myndi ég þekkja þá aftur á förnum vegi, því það sást ekki í þá. Hótelið er fínt og herbergi af eðlilegri stærð. Það held ég skipti máli upp á innilokunarkennd.“
Dagur eitt á sóttkvíarhóteli. Komin heim en samt ekki. Frekar sérstök upplifun. Kom á hótelið síðdegis og var þar...
Posted by Björg Eva Erlendsdóttir on Fimmtudagur, 22. apríl 2021