Bjóða ferðir til Tenerife og Kanarí strax á morgun: Íslendingar þurfa ekki að framvísa neikvæðu COVID-prófi

Þeim Íslendingum sem farið er að þyrsta í örlítið meiri sól og hlýju býðst nú að fara til Tenerife og Kanaríeyja strax á morgun.

Í fjöldapósti sem Úrval útsýn sendi áskrifendum í morgun kemur fram að Íslendingar þurfi ekki lengur að framvísa neikvæðu COVID-prófi til Tenerife og Kanarí þar sem Ísland telst nú grænt svæði.

Þórunn Reynisdóttir, forstjóri Úrval útsýn, segir í samtali við Hringbraut að hægur stígandi hafi verið í eftirspurn eftir ferðum að undanförnu. Eftirspurnin sé þó ekkert í líkingu við það sem var fyrir tíma COVID og framboðið af ferðum ekki heldur.

Þórunn segir að það hafi gerst fyrir helgi að Íslendingar þyrftu ekki að framvísa neikvæðum COVID-prófum við komuna til eyjanna. Þá þurfa þeir ekki að fara í sýnatöku eða sóttkví við komuna út. Góður árangur hefur náðst í baráttunni gegn COVID-19 hér á landi að undanförnu og telst Ísland nú grænt svæði og lítil áhætta á smitum frá landinu.

„Hlutirnir geta auðvitað breyst hratt og við upplýsum okkar viðskiptavini ef slíkar breytingar verða,“ segir Þórunn.

Ferðirnar sem Úrval útsýn býður upp á eru á ýmsum verðum en eiga það allar sameiginlegt að flogið er út á morgun og komið heim 7. mars. Ódýrasta ferðin kostar 58.900 miðað við tvo fullorðna og tvö börn á Apartamentos Dorotea-hótelinu á Kanaríeyjum. Einnig er hægt að dvelja á fleiri hótelum, til dæmis Lopesan Baobab-lúxushóteli á Kanaríeyjum en dvölin þar kostar 220.500 miðað við tvo fullorðna. Morgunmatur er innifalinn.