Bjartmar segir að ráðamenn þjóðarinnar ættu að hundskammast sín

Hinn ástsæli tónlistarmaður Bjartmar Guðlaugsson segir að þeir sem stjórna þessu landi ættu að hundskammast sín.

Bjartmar var í viðtali við vef Mannlífs í gærkvöldi þar sem hann ræddi meðal annars nýja plötu hans og Bergrisanna, en fyrsta lagið af plötunni, Á ekki eitt einasta orð, hefur fengið töluverða spilun.

„Textinn fjallar um mjög mikla vá sem varðar eignarhald á landinu og auðlindum þess. Nú er verið að selja útlendingum jarðir á Austurlandi og víðar um land. Það virðist enginn veita þessu mikla athygli; það virðast engir stjórnmálamenn vera að velta þessu fyrir sér,“ segir Bjartmar meðal annars í viðtalinu og segir þetta koma lítið til umræðu. Þá sé skrýtið hversu fáir stjórnmálamenn hafa stefnu eða skoðun á málinu.

„Svör þeirra eru að vísu að það sé ekki hægt að hefta kaup útlendinga á íslenskum fasteignum. Það er alveg furðulegt að þeir skuli reikna þetta sem fasteignir. Þetta er ekki eins og verið sé að selja tveggja herbergja íbúð í Vesturbænum. Málið er að þetta eru ekki fasteignakaup. Þetta eru jarðakaup. Það er búið að kaupa þvílíkt magn af landi að það er með ólíkindum og það er búið að ákveða alls konar hluti sem eru á huldu fyrir þjóðinni varðandi þessi mál. Þetta er eftirlitslaust og þeir ættu að hundskammast sín sem stjórna þessu landi.“

Bjartmar segist ekki vita hvort hann ætli að kjósa í kosningunum í haust. Það sé lítið í boði sem heillar hann.

„Áherslan virðist vera lögð á að græða milljarða en fólkið sem býr til þessa milljarða er ekki að njóta þeirra nema örfáir vegna þess að launaskiptingin í landinu er með þvílíkum ólíkindum. Þetta er ekki líkt norræna módelinu. Þetta er líkt ameríska hagkerfinu þegar það lítur sem verst út.“