Bjarni Helgason, íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu, segist hafa fengið að heyra það reglulega fyrir skrif sín um íþróttir. Bjarni segir frá þessu í pistli á íþróttasíðum Morgunblaðsins í dag.
„Eins og ég hef áður komið inn á hér í Bakvarðadálkinum hef ég fengið símtöl þar sem ég hef svo gott sem fengið á lúðurinn frá ósáttum lesendum, sem og í tölvupóstum þótt það hafi reyndar dregið aðeins úr því. Ég hef hins vegar einu sinni fengið alvöruhnefa á lúðurinn en það gerðist í Liverpool fyrir tæpum tuttugu árum,“ segir Bjarni.
Bjarni var staddur í Bítlaborginni til að fylgjast með sínum mönnum í Liverpool í undanúrslitum Evrópudeildarinnar þar sem andstæðingurinn var skoska stórliðið Glasgow Celtic.
„Borgin var troðfull af stuðningsmönnum skoska liðsins og þeir létu vel í sér heyra meðan á dvöl þeirra stóð. Einhvern veginn tókst mér að enda með nokkrum þeirra í lyftu á ónefndu hóteli í borginni. Þeir létu nokkur vel valin orð falla um mína menn eftir 2:0- tap Liverpool sem ég átti erfitt með að sitja undir.“
Bjarni segir að unglingurinn í honum hafi ákveðið að svara þeim með þeim afleiðingum að hann fékk einn á lúðurinn.
„Bara einn samt. Þetta var ákveðin lexía fyrir mig, sem segir sig eflaust sjálft, enda haldið mig á mottunni síðan. Ég tók áhugavert viðtal við Arnar Gunnlaugsson, þjálfara Víkings í Reykjavík, um daginn sem birtist á íþróttasíðum Morgunblaðsins. Þar talaði hann um að það væri stundum betra að halda bara kjafti. Orð að sönnu. Menn læra og lifa, þannig er það víst í þessu blessaða lífi.“