Bjarni Benediktsson segir í viðtali við Morgunblaðið í dag að ákveðið hafi verið í sumar að auka aðhald meira en upphaflega var gert ráð fyrir í fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár sem lagt verður fram á mánudag. Meðal þess sem gert verður er að lækka fjárstuðning við stjórnmálaflokka um fimm prósent og fresta nýjum útgjöldum sem ráðast átti í á næsta ári fram til 2024 eins og kostur er.
„Að hluta er það kannski raunsæi. Það var ekki raunhæft að gera ráð fyrir því að við gætum framkvæmt jafn mikið og áður var áætlað. Við boðuðum það að hefja gjaldtöku á umhverfisvænum bílum, umfram það sem hefur verið til þessa, og það felur í sér aukið aðhald. Það dregur úr þenslu í hagkerfinu og styður þannig Seðlabankann í hans aðgerðum. Þetta er dæmi um aðgerðir sem við boðuðum í sumar og við erum að útfæra núna. Heilt yfir þá njótum við góðs af því að það er mikill þróttur í hagkerfinu,“ segir Bjarni.
Hann segir engar skattahækkanir í frumvarpinu umfram hækkanir á krónutölusköttum í samræmi við hækkandi verðlag en hún sé þegar komin fram. Áfram verði staðið vörð um heilbrigðiskerfið og tekist hafi vel til að verja Landspítalann í Covid-faraldrinum.