Bjarni: „Þrjósku­banda­lag er geggjað orð“

Stjórn­mála­fræðingurinn Bjarni Þór Péturs­son segir að orðið „þrjósku­banda­lag“ sé frá­bært orð. Orðið notaði Hildur Björns­dóttir, odd­viti Sjálf­stæðis­flokksins í borginni í gær um banda­lag Sam­fylkingar, Pírata og Við­reisnar.

Bjarni segir hins­vegar að orðið sé full­komið til að lýsa Sjálf­stæðis­flokknum. „Flokki tveggja fylkinga sem eiga ekkert sam­eigin­legt annað en völd og hefðir. Flokk sem er ó­starf­hæfur í borginni og myndi gera öllum greiða með því að skipta sér í tvo flokka,“ skrifar Bjarni á Twitter.

„Í heimi þar sem fólkið í borgar­stjórnarfl. Sjálf­stæðis­flokksins væri að byrja í stjórn­málum, þá færi Hildur senni­lega í Við­reisn eða Sam­fylkingu, Frið­jón í Við­reisn eða Sam­fylkinguna og restin í Mið­flokkinn. Og myndu aldrei vilja vinna með restinni. Sann­kallað þrjósku­banda­lag,“ skrifar Bjarni.

Hann bætir við að síðustu: „Af­sakið Frið­jón færi í Við­reisn eða Fram­sókn átti þetta að vera. Bið Frið­jón af­sökunar.“