Bjarni þakkar fyrir að vera þríbólusettur: „Hitalaus allan tímann“

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, segist hafa notið góðs af því að vera þríbólusettur þegar hann smitaðist af Covid-19 milli jóla og nýárs.

Bjarni sagði í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun að það megi líkja veikindum sínum við kvef.

„Ég komst þannig í gegnum þetta að ég naut góðs af því að hafa þríbólusett mig. Var hitalaus allan tímann. Þetta var nú ekki mjög íþyngjandi í mínu tilfelli,“ sagði hann.

„Ef ég hefði ekki verið í einangrun þá hefði ég mætt á æfingu og í vinnuna alla daga. Minniháttar kvef í mínu tilviki.“

Var hann spurður hvort hann hefði verið í heimaæfingum. „Heimaæfingarnar voru meira þannig að „Jæja, nú er löngu kominn tími til að taka til í draslskúffunni Bjarni. Losir þig við föt sem þú hefur ekki farið í í fjögur ár. Takir til í bílskúrnum og pakkir niður jólaskrautinu.“