„Það er búið að drepa þetta. Við endurráðum ekki þá sem eru á uppsagnarfresti og munum segja öllum upp og lokum öllu. Það er ekki annað að gera í stöðunni.“
Þetta segir Bjarni Jónsson, eigandi Nordic Store-keðjunnar, í samtali við ViðskiptaMoggann í dag. Þar kemur fram að útlit sé fyrir að loka þurfi öllum verslunum keðjunnar nú um mánaðamótin. Bjarni segir að ástæðan séu hertar aðgerðir á landamærunum en eins og kunnugt er þurfa þeir sem koma til landsins nú að gangast undir tvær skimanir og sóttkví uns niðurstaða úr seinni sýnatöku liggur fyrir.
Nokkrar verslanir Nordic Store er að finna í miðborginni, til dæmis á Laugavegi og í Lækjargötu. Í fréttinni er haft eftir Bjarna að salan undir lok júlímánaðar hafi verið 40% af sölunni í fyrra. Nú þegar aftur er búið að herða aðgerðir sé útlit fyrir að fáir ferðamenn komi til landsins og því sé í raun búið að kippa fótunum undan rekstrinum.