Bjarni Benediktsson, fjármála og efnahagsráðherra, seigst hafa beðið allt sitt nánasta fólk um að taka ekki þátt í útboðinu á Íslandsbanka á síðasta ári. Það hafi ekki hvarflað að honum að faðir hans myndi gera það.
Öll hans nánasta fjölskylda lét það vera í fyrra útboði ríkisins í bankanum þegar almenningur gat keypt hluti en nú keypti félagið Hafsilfur sem er í eigu Benedikts Sveinssonar, faðir Bjarna.
Þetta kemur fram ífrétt Vísis en gagnrýnt hefur verið að Benedikt hafi keypt 0.1% hlut í bankanum fyrir 55 milljónir.
„Ég talaði við mitt fólk fyrir almenna útboðið á bankanum í fyrra og bað þau um að taka ekki þátt í því. Ég tók sjálfur ekki þátt þá eins fram hefur komið og mæltist með því að aðrir í fjölskyldunni gerðu það líka. Það hvarflaði ekki að mér að það myndi gerast í þetta skiptið,“ segir Bjarni í samtali viðVísi.
Aðspurður um hvort hann sé búinn að heyra í pabba sínum vegna málsins svarar Bjarni.
„Hvað heldur þú.“
Bjarni villl ekki tjá sig um hvað þeirra hafi farið á milli, það eigi ekki erindi til fjölmiðla.
Aðspurður um hvaða skýringar faðir hans hafi gefið segir Bjarni.
„Ég ætla ekki að fara út í þá sálma hér.“