Bjarni segir Þor­björgu sýna van­þekkingu á sögu málsins: „Mér finnst þetta úr lausu lofti gripið“

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir það koma spánskt fyrir sjónir, þegar menn sem hafi ekkert til um­ræðunnar lagt spyrji „hvers vegna gerðuð þið þetta fyrr?“

Vísar hann þá í gagn­rýni Þor­bjargar Sig­ríðar Gunnars­dóttur, þing­manns Við­reisnar, sem gagn­rýndi Bjarna í dag fyrir við­bragðs­tíma hans í tengslum við að­gerðir vegna Í­búða­lána­sjóðs. Þetta kemur fram á mbl.is.

„Mér finnst þetta úr lausu lofti gripið og sýna van­þekkingu á sögu þessa máls,“ segir Bjarni og bendir á að Í­búða­lána­sjóður hafi alla tíð heyrt undir fé­lags­mála­ráðu­neytið.

„Við sam­þykkt­um lög á Al­þingi 2019, þar sem við gerðum að­skilnað milli á­fram­hald­andi starf­­semi Í­búða­lána­­sjóðs, sem er nú á borði Hús­­næðis- og mann­­virkja­­stofn­un­ar, og skyld­um eft­ir gömlu Í­búða­lána­­sjóðs­bréf­in í því sem við köll­um ÍL-sjóð,“ segir Bjarni.

„Við höf­um haldið utan um og verið að greina vanda­­málið. Nú er ég að leggja til að við för­um að gera eitt­hvað í þessu,“ segir Bjarni.

„Það sem ég er að reyna að vekja at­hygli á hérna, og hefði átt að vera öll­um ljóst, er að ríkið er ekki í sjálf­skuld­ar­á­byrgð fyr­ir ÍL-sjóð held­ur í ein­faldri á­byrgð,“ segir Bjarni.

„Mér sýn­ist menn hafa gengið út frá því að ríkið kæmi með, án skyldu, hundruð millj­arða, til þess að halda þess­um út­­gáf­um lif­andi út líf­­tíma þeirra. Mér finnst það aft­ur á móti ó­verj­andi.“