Bjarni orð­laus yfir góð­mennskunni: „Ég segi bara takk!“ – Ís­lendingar standa saman

„„Ég segi bara takk!“ segir maður stundum þegar manni er orða vant yfir góðri gjöf,“ segir Bjarni Gísla­son, fram­kvæmda­stjóri Hjálpar­starfs Kirkjunnar.

Bjarni skrifar eins konar þakkar­bréf á vef Vísis en þar segir hann frá stór­kost­legum stuðningi við starfið undan­farnar vikur. Ís­lendingar hafa marg­oft sýnt það og sannað að þeir standa saman þegar mikið liggur við og sýna sam­kennd með þeim sem standa höllum fæti.

„Stuðningi frá Hjálpar­liðum og öðrum ein­stak­lingum, fé­laga­sam­tökum, fyrir­tækjum og stofnunum sem sam­tals nemur um 120 milljónum króna. Við erum auð­mjúk gagn­vart því trausti sem þessi met­stuðningur endur­speglar. Hann gerir okkur kleift að veita á­fram að­stoð því fólki sem býr við al­var­legan efnis­legan skort og erfiðar fé­lags­legar að­stæður á Ís­landi jafnt sem á al­þjóða­vett­vangi,“ segir hann.

Bjarni bendir á að þeir sem leita til starfsins búi við kröpp kjör vegna lágra launa, at­vinnu­leysis, ör­orku eða fjöl­þætts fé­lags­legs vanda.

„Í miðjum heims­far­aldri er neyð hvers ein­stak­lings sem til okkar leitar meiri á sama tíma og fleiri þurfa á ráð­gjöf, stuðningi og efnis­legri að­stoð að halda.“

Bjarni bendir á að frá því í byrjun apríl og til loka síðasta árs hafi fjölgað í hópi þeirra sem leituðu til starfsins um 40% miðað við sama tíma­bil á árinu 2019. Segir Bjarni að þetta sé einungis vegna á­hrifa CO­VID-19.

„Í desember síðast­liðnum fengu þannig 1.787 fjöl­skyldur eða 4.824 ein­staklingar (miðað við 2,7 í fjöl­skyldu) um land allt inn­eignar­kort Hjálpar­starfs kirkjunnar fyrir mat­vöru saman­borið við 1.275 fjöl­skyldur eða 3.443 ein­staklingar sem fengu inn­eignar­kort til að kaupa í matinn fyrir jólin árið 2019.“

Bjarni segir að vitan­lega vonist allir til þess að heims­far­aldrinum ljúki senn, en þó verði að horfast í augu við það að næstu mánuðir og ár verði mörgum erfið vegna efna­hags­legra á­hrifa far­aldursins.

„Staða fólks er mjög mis­jöfn og það er fólkið sem fyrir var í við­kvæmri stöðu sem hefur orðið verst úti, fólk á jaðri vinnu­markaðarins, út­lendingar, lág­tekju­fólk og ör­yrkjar. Margir sem hafa misst vinnuna og tæmt vara­sjóði og spari­fé upp­lifa nú mikið ó­öryggi um fram­færslu um leið og hús­næðis­kostnaður er á­fram hár og vöru­verð fer hækkandi. Fólkið sem leitaði til Hjálpar­starfs kirkjunnar fyrir jólin var allt í þeirri stöðu að tekjur og bætur duga fjöl­skyldunni ekki til fram­færslu. Fé­lags­ráð­gjafar Hjálpar­starfsins segja einnig að ein­staklingar sem til okkar leita finni margir fyrir fé­lags­legri ein­angrun og van­líðan sem hafi aukist í heims­far­aldrinum.“

Bjarni segir að lokum að for­svars­menn Hjálpar­starfs kirkjunnar séu inni­lega þakk­látir fyrir stuðninginn og traustið og á­fram verði þeim sem búa við fá­tækt veittur stuðningur.

„Þessi frá­bæri stuðningur við starfið er sam­kennd í verki. Hann sýnir að við sem sam­fé­lag erum þess megnug að rétta úr kútnum á ný þannig að við skiljum engan eftir. Það er á­byrgð okkar allra. Takk!“