Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra, munu grilla ofan í gesti Kótelettunnar á Selfossi á morgun. Um árlega sölu á kótelettum á vegum Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna er að ræða í samstarfi ið Mömmumat, SS og Kjarnafæði.
Hægt er að nálgast grillaðar kótelettur frá þeim félögum á morgun milli 13 og 16.
Bjarni Ben hefur lengi vel verið þekktur fyrir það að baka og verður áhugavert að sjá hvort hann kunni líka að grilla.
Sérstakir aðstoðargrillarar verða Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra.
Síðast þegar hátíðin var haldin grillaði Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands ofan í gesti Kóteletturnar. Það er því spurning hvort ráðherra kótelettur bragðast betur en forsetakótelettur?