Bjarni og Guðlaugur segjast hafa slíðrað sverðin

Guðlaugur Þór Þórðarson og Bjarni Benediktsson segjast báðir hafa slíðrað sverðin, nú þegar formannskjöri og landsfundi er lokið. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.

Bjarni, sem fór með sigur af hólmi segist ekki hafa áhyggjur af því að flokkurinn sé klofinn. Hann fékk rúmlega 60 prósent atkvæða en Guðlaugur 40 prósent.

„Af minni hálfu lít ég þannig á að við hljótum að ætla að snúa bökum saman allir flokksmenn og vera í einu liði, þannig að ég hef ekki miklar áhyggjur af því nú,“ hefur Mogginn eftir Bjarna. Hann segir stuðninginn við Guðlaug ekki hafa komið sér á óvart.

Guðlaugur Þór segist stoltur af sínum árangri. Hann segir áherslumál sín hafa komist á dagskrá þrátt fyrir ósigurinn.

„Enda gat ég ekki betur heyrt en að formaðurinn tæki undir þau,“ hefur Mogginn eftir Guðlaugi.

„Þetta er það sem ég hef verið að leggja áherslu á. Við erum orðin þreytt á því að vinna sífellda varnarsigra. Við getum verið stolt af því að vera sjálfstæðisfólk. Við getum verið stolt af gildunum okkar og sögu flokksins.“