Bjarni með opið bréf til Þór­ólfs: „Þú mátt líka, Þór­ólfur, hugsa um af­leiðingarnar“

Bjarni Jóns­son, eig­andi Nor­dic Stor­e og fyrr­verandi dósent, skrifar opið bréf til Þór­ólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis þar sem hann varar við hrika­legum af­leiðingum þess að loka landinu fyrir ferða­mönnum til lengri tíma.

Bjarni skrifar pistil um málið á vef Vísis.

„Sæll Þór­ólfur.

Á síðasta upp­lýsinga­fundi um Co­vid varpaðir þú fram eftir­farandi spurningum: Hvað eigum við að sætta okkur við að margir sýkist, hvað margir leggist inn á spítala og hve margir deyja af völdu Co­vid?

Ég ætla nefna nokkur dæmi sem geta hjálpað þér við að komast að svarinu.“

Bjarni nefnir að allt að 29 manns deyi ár­lega af völdum in­flúensu sem berst reglu­lega til landsins. Hægt væri að koma í veg fyrir þessi dauðs­föll með því að loka landinu. Þá deyi 10-20 manns ár­lega í um­ferðar­slysum og 150 slasast al­var­lega eða ör­kum­last. Hægt væri að koma í veg fyrir þessi dauðs­föll og ör­kuml með því að banna um­ferð.

„Um 400 manns deyja ár­lega af völdum tóbaks­reykinga. Við gætum komið í veg fyrir mörg þessara dauðs­falla með því að banna reykingar en kjósum að gera það ekki, teljum þessi dauðs­föll á­sættan­leg.“

Bjarni nefnir fleiri dæmi. Þá sem deyja um aldur fram og hafa leitað sér á­fengis­með­ferðar hjá SÁÁ. Hægt væri að banna á­fengi en kosið sé að gera það ekki. Þá hafi ó­fáir sjó­menn dáið við störf sín en af aug­ljósum á­stæðum sé sjó­sókn ekki bönnuð.

„Að loka landinu fyrir ferða­mönnum eins og gert var 19. ágúst kemur hugsan­lega í veg fyrir ein­hver Co­vid smit, jafn­vel dauðs­föll, en þú mátt líka, Þór­ólfur, hugsa um af­leiðingarnar. Þúsundir missa vinnuna, allt að 10% vinnandi manna. Hundruðir missa fyrir­tæki sín í gjald­þrot og tapa al­eigunni. Heilsu­fars­legar, fé­lags­legar og efna­hags­legar af­leiðingar munu hrjá allt þetta fólk, börn þeirra og fjöl­skyldur um langt skeið. Von­leysi, fá­tækt, þung­lyndi, sjálfs­morð. Þessi á­hrif eru rétt að byrja að verða sýni­leg.“