Bjarni leiður og „pirraður“ á að ræða launa­mál þing­manna

Bjarni Bene­dikts­­son gagn­rýn­di Hall­dóru Mogen­sen, þing­mann Pírata, fyrir það að benda á að launa­hækk­un for­­sæt­is­ráð­herra verði tvö­föld hækkun á taxta­launum hjúkrunar­fræðinga. Á Stundinni er greint frá því að Bjarni hafi sagt vera „leiður á“ að ræða launa­mál þing­manna og ráð­herra á Al­þingi en ráð­herra eiga að hækka um 100.000 á einu bretti og er sú hækkun aftur­virk til fjögurra mánaða.

Hall­dóra spurði Bjarna í ó­undir­búnum fyrir­spurnum um launa­hækkun þing­manna sem tekur gildi næstu mánaða­mót. Þá spurði Hall­dóra hvort það væri ekki ráð að falla frá fyrir­huguðum launa­hækkunum.

Bjarni svaraði að þing­menn og ráð­herrar væru eftir­bátar annarra þegar kæmi að launa­hækkunum undan­farin ár. Hall­dóra sagði greini­legt að Bjarni væri pirraður á að ræða launa­málin. Þá bendir Stundin á að þetta sé í annað sinn sem Bjarni kveðst leiður á að ræða laun þing­manna og ráð­herra. Árið 2017, þegar laun þing­manna hækkuðu strax eftir kjör­dag um 44%, sagði Bjarni:

„Mér finnst alveg ger­sam­lega ó­þolandi að þurfa að taka um­ræðu um það hver kjör þing­manna eigi að vera eða ráð­herra ef því er að skipta. Mér finnst rétt að um þau mál eigi að búa með lögum og fela þriðja aðila að leiða það til lykta.“

Hér má lesa út­tekt Stundarinnar.