Bjarni Karls­son: Erum við öll að hugsa bak við grímuna að nú sé tíminn kominn?

„Erum við kannski öll að hugsa að nú sé tíminn kominn?“ Þessari spurningu varpar Bjarni Karls­son prestur fram í bak­þönkum Frétta­blaðsins í dag. Bjarni veltir því fyrir sér hvort jarðar­búar séu – reynslunni ríkari vegna CO­VID-19 – til­búnir í nauð­syn­legar breytingar til að tryggja ó­fæddum kyn­slóðum öryggi.

„Ég veit fátt um lífið þitt. Þótt þú segðir mér allt um þig myndi ég lítið skilja. Maður skilur ekki sjálfan sig. Hvað þá aðra. Eitt veit ég þó: Við erum að anda að okkur sama súr­efni og þurfum ca. 13 kíló af því á sólar­hring. Annað veit ég líka: Þú þráir öryggi og heilsu fyrir þig og þína líkt og ég. Við erum sem sagt stödd í sama loft­massa með sams konar hags­muni. Kannski ættum við að tala saman,“ segir hann.

Bjarni spyr les­endur hvort þeir hafi tekið eftir því hvað fólk fer ó­venju var­lega þessa dagana og reynir að brosa hvert til annars á bak við and­lits­grímurnar.

„Getur verið að við séum öll að hugsa það sama bak við grímuna? Við sem höfum vanist þeirri hugsun að hver rembist við að há­marka eigin árangur í vinnu, líkams­hreysti, fjár­málum, ásta­málum og öllu öðru. Allt í einu erum við ekki ein að rembast heldur komin í úní­form og þjóð­fé­lagið orðið að alls­herjar her­æfingu.“

Bjarni bendir á að ó­vinurinn sé ó­sýni­legur og geri engan manna­mun. Ekkert dugi nema virk sam­staða í þágu heildarinnar.

„Við sem ætluðum að vera frjáls á eigin vegum sjáum í hendi okkar að ekkert frelsi mun fást nema því sé deilt með öllum. Um leið og við æfum veiru­varnir út­víkkum við hugann og upp­götvum hvað allt er inn­byrðis tengt og háð hvað öðru á hnettinum bláa. Landa­mæri og peningar eru til hlið­sjónar en loft­straumar og haf­straumar eru öflin sem ráða,“ segir Bjarni sem endar bak­þanka sína á þessum hug­leiðingum:

„Erum við kannski öll að hugsa að nú sé tíminn kominn? Tíminn til að leggja saman af stað inn í breytinga­ferli þar sem við gerum það sem gera þarf svo að við ekki bara komumst út úr Kófinu heldur varð­veitum loft­massann okkar og höfin heil­brigð og tryggjum þannig ó­fæddum kyn­slóðum öryggi og heilsu? Erum við til­búin?“