Bjarni Halldór Kristjánsson kom hreindýri til bjargar í Berufirði við Djúpavog í morgun en ljóst má vera að ekkert nema dauðinn hafi beðið dýrsins ef ekki hefði verið fyrir Halldór.
„Rúdolf var í alvarlegum vandræðum, við héldum fyrst að hann væri allur en svo var aldeilis ekki. Sem betur fer var ég með verkfæri og klippti dýrið laust. Hann var alveg slakur allan tímann og þurfti talsverða hvatningu til að hafa sig af stað. En svo tók hann gleði sína og skokkaði af stað til hjarðar sinnar,“ sagði Bjarni í færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hann birti myndir og myndbönd af dýrinu.
Eins og sést hafði hreindýrið fest sig í girðingu og virtist það algjörlega ósjálfbjarga.
Bjarni segir í samtali við RÚV að hann verið á leið heim úr vetrarfríi þegar hann rak augun í dýrið og aldrei hafi annað komið til greina en að koma því tiol hjálpar.
Myndband af þessu má sjá hér að neðan.