Bjarni Felixon er þekktasti íþróttafréttamaður í íslensku sjónvarpi en hann starfaði á RUV í tæp 50 ár.
Hann er gestur Sigurðar K. Kolbeinssonar í Betra horninu í þættinum Lífið er lag sem er á dagskrá Hringbrautar
kl. 20.30 í kvöld. Þar rifjar Bjarni upp upphafsár enska boltans í íslensku sjónvarpi og lýsir því m.a. að þeir
einstaklingar sem sýndu þessu sjónvarpsefni áhuga voru taldir í hópi sérvitringa. Síðan hefur margt vatn runnið
til sjávar og enski boltinn orðinn eitt vinsælasta sjónvarpsefni landsmanna. Bjarni fer einnig yfir farinn veg sem
knattspyrnumaður og fyrrum landsliðsmaður en hann lék 6 landsleiki fyrir Ísland á 7. áratugnum og m.a. ásamt
bræðrum sínum Herði og Gunnari en þeir komust í Heimsmetabók Guinness fyrir að leika allir sama landsleikinn.
Þá svarar Bjarni því hvaða knattspyrnumenn hafa að hans mati skarað einna mest framúr í íslenskri knattspyrnusögu. Það er
engan bilbug að finna á þessum 84ja ára gamla öðlingi sem veit meira um enska kanttspyrnu en flestir aðrir landsmenn.
Í viðtalinu eru skemmtilegar myndskreytingar frá úrslitaleik Englendinga og Þjóðverja á Wembley árið 1966 ásamt
fjölmörgum gömlum ljósmyndum af Bjarna og félögum hans í KR þegar hann lék knattspyrnu í Vesturbænum.