Bjarni fær hvergi vinnu: „Ég hef sótt um 170 störf og fengið jafn margar hafn­an­ir“

„Ég hef sótt um 170 störf og fengið jafn margar hafn­an­ir. Það er að með­al­tali rúm­­lega 14 störf á mán­uði,“ segir Bjarni Jóns­son sem hefur verið í at­vinnu­leit í heilt ár. Bjarni skrifar af því til­efni býsna at­hyglis­verðan pistil á vef Kjarnans.

„Ekki það að ég hafi setið auðum höndum og horft í gaupnir mér, grátið ör­lög mín og fallið í dep­urð,“ segir Bjarni en auk þess að sækja um 170 störf hefur hann sent út net­póst með al­mennri kynn­ingu á sér til 52 fyr­ir­­tækja. Þá hefur hann hringt í eða hitt fólk frá fjöl­mörgum fyrir­tækjum eða fé­laga­sam­tökum í von um að fá vinnu. En það hefur ekki gengið.

„Ég hef sótt um alls­­konar störf. Starf fram­­kvæmda­­stjóra, verk­efna­­stjóra og við markaðs­mál en þetta eru þær greinar sem ég hef menntað mig til. Þá hef ég sótt um starf skrif­­stofu­­stjóra, þjón­ustu­full­­trúa, inn­­kaupa­full­­trúa, sölu­­manns, fjár­­mála­full­­trúa, liðs­auka, sveitar­stjóra, lag­er­­stjóra, við inn­flutn­ing, mót­töku­full­­trúa, upp­­­lýs­inga­full­­trúa, við ráð­­gjöf, skrif­­stofu­­manns, sum­ar­­störf – allt störf sem ég treysti mér full­kom­­lega til að vinna vel,“ segir Bjarni sem kveðst hafa sótt um störf utan höfuð­borgar­svæðisins og meira að segja á Norður­löndunum. Á þessu ári sem liðið er hefur Bjarni komist í 6 starfs­við­töl.

Í grein sinni nefnir Bjarni að at­vinnu­leysi hafi verið 3,4 prósent þegar hann missti vinnuna í fyrra. Þetta var áður en á­hrifa CO­VID-19 fór að gæta og er at­vinnu­leysi nú orðið tals­vert hærra.

Bjarni segir að það sé þó ekki allt nei­kvætt við að vera án vinnu. „Ég hef verið svo hepp­inn að geta tekið meira þátt í lífi yngstu barna­barn­anna með því að sækja í leik­­skóla og dekra svoldið við þau. Þá hefur Reykja­vík­ur­­borg út­vegað mér sund­kort sem ég reyni að nýta vel. Að sjálf­­sögðu sé ég um heim­ilið á meðan eig­in­­konan sér um að draga björg í bú. Þurrka af, þríf og elda sem er á­gætis dægra­dvöl.“

Bjarni segist í lok greinar sinnar eiga tíu ár eftir á vinnu­markaði enda frískur og sprækur. „Þá ósk á ég heitasta að hafa vinnu í stað þess að sækja stöðugt um störf næstu tíu ár. Það ræt­ist von­andi úr innan tíð­ar!“

Hér má lesa grein Bjarna í heild sinni.