Bjarni fær 370 þúsund króna launahækkun og 3 milljóna eingreiðslu

Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, fær dágóða launahækkun, eða 370 þúsund krónur á mánuði, eftir að stjórn Orkuveitunnar samþykkti að hækka laun hans. Eru þau nú tæplega 2,9 milljónir króna.

Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag.

Þar kemur fram að fyrir hækkunina voru laun hans 2.502.343 krónur en eru nú 2.872.669 krónur. Nemur hækkunin 14,8 prósentum og var hún veitt að undangengnu mati á frammistöðu Bjarna í starfi. Þessu til viðbótar fær Bjarni þriggja milljóna króna eingreiðslu þar sem launin hafi ekki hækkað í tvö ár.

Nánar í Fréttablaðinu í dag.