Bjarni Óskarsson, bóndi á Völlum í Svarfaðardal hefur skorið upp herör gegn Matvælastofnun sem hann segir að beiti sig fádæma stofnanaofbeldi eins og hann kallar aðför kerfisins að sér og sínum.
Hann er í viðali í fréttaþættinum 21 í kvöld og segir þar farir sínar ekki sléttar; honum hafi verið gert að slátra fáeinum bleikjum í tjörn við bæ sinn, en greiða ella stofnuninni tæplega hálfa milljón í leyfisgjöld. Hann segir kerfishugsunina vera í engum tengslum við veruleikann, kontóristar drepi ekki einasta niður eðlilegt frumkvæði í sveitum landsins heldur vilji þeir gína yfir allri starfseminni með gjaldskrá sinni ógurlegri; menn skuli borga hæstu leyfisgjöld fyrir minnstu smávik og snúninga.
Hann segir það vera beinlínis fáránlegt að sérstakt rekstrarleyfi þurfi fyrir eldi á fáeinum bleikjusporðum í bæjartjörninni – og hótun Matvælastofnunar í þeim efnum merki ekkert annað en að stofnunin fari offari. Ef fram haldi sem horfi þurfi rekstrarleyfi fyrir hundinn á bænum, gott ef ekki kettina líka og sjálfsagt mýsnar, ef út í það er farið, en allir sjái að afarkostir af þessu tagi séu í besta falli óeðilegir. Og hann heitir á þingmenn þjóðarinnar að standa með bændum gegn bírókrasíu af þessari kúnst.