Bjarni biðst innilegrar afsökunar á að hafa verið í gleðskapnum

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur sent frá sér afsökunarbeiðni sem hann birti á Facebook. Hann var gestur í hátt í fimmtíu manna samkvæmi í gær. Hér má lesa afsökunarbeiðnina í heild sinni:

„Á heimleið úr miðborginni í gærkvöldi fengum við Þóra símtal frá vinahjónum, sem voru stödd á listasafninu í Ásmundarsal og vildu gjarnan að við litum inn til þeirra og köstuðum á þau jólakveðju. Þegar við komum inn og upp í salinn í gærkvöldi hefði mér átt að verða ljóst að þar voru fleiri en reglur gera ráð fyrir.

Eins og lesa má í fréttum kom lögreglan og leysti samkomuna upp. Og réttilega. Þarna hafði of margt fólk safnast saman.

Ég hafði verið í húsinu í um fimmtán mínútur og á þeim tíma fjölgaði gestunum. Rétt viðbrögð hefðu verið að yfirgefa listasafnið strax þegar ég áttaði mig á að fjöldinn rúmaðist ekki innan takmarkana. Það gerði ég ekki og ég biðst innilega afsökunar á þeim mistökum.“

Á heimleið úr miðborginni í gærkvöldi fengum við Þóra símtal frá vinahjónum, sem voru stödd á listasafninu í...

Posted by Bjarni Benediktsson on Thursday, 24 December 2020