Bjarni Ben rifjar upp það versta sem hann hefur gengið í gegnum

Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, upplifði erfiða tíma árið 2011 þegar eiginkona hans, Þóra Margrét Baldvinsdóttir, fæddi fjórða barn þeirra hjóna.

Bjarni er í athyglisverðu spjalli í Einkalífinu á vef Vísis þar sem hann ræðir meðal annars um stjórnmálin og einkalífið eins og nafn þáttarins gefur til kynna.

Bjarni hefur marga fjöruna sopið, bæði í stjórnmálum og í einkalífinu undanfarin misseri, en hann segir að eitt augnablik komi sérstaklega upp í hugann þegar hann er spurður út í áföllin í lífinu.

Dóttir þeirra hjóna er með mikið ör eftir fæðinguna árið 2011. Nefnir Bjarni að það hafi þurft að taka hana út með klukku og voru gerðar margar tilraunir til að toga hana úr móðurkviði.

„Svo kemur hún út með töluvert mikinn áverka á höfðinu og alveg hreyfingarlaus á öðrum handleggnum. Þá spurði maður sig hvort það hefði allt slitnað og farið illa. Svo var sagt við okkur, sem er þessi lykilsetning, þetta verður í góðu lagi að öllum líkindum,“ segir Bjarni í viðtalinu og nefnir að eftir á að hyggja hefði verið átt að senda fara með hana í keisaraskurð. Allt blessaðist þetta þó að lokum og fékk dóttir þeirra máttinn aftur í handlegginn.