Bjarni Ben kominn heim af skíðum: „Það yljar manni að finna að fólki er ekki sama um mann“

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra er kominn til landsins eftir skíðaferð.

„Það er alltaf gott að koma heim. Ég sé og finn að sumir hafa saknað mín. Það yljar manni að finna að fólki er ekki sama um mann,“ segir hann á Facebook.

„Svo virðist sem stjórnarandstaðan hafi átt mjög erfitt með þetta. Svo mjög að jafnvel þótt ég hafi uppsafnað frá byrjun árs 2020 aðeins verið erlendis í um 2 vikur leið þeim eins og ég væri fluttur af landinu.“

Margir stjórnarandstöðuþingmenn fóru hamförum fyrir því að Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, utanríkisráðherra, hafi flutt frumvarp Bjarna í fjarveru hans. Bjarni er pollrólegur:

„Þetta verður fljótt að jafna sig trúi ég en er svo sem ekki í fyrsta skipti sem Samfylkingin dregur rangar ályktanir af staðreyndum.“