Bjarni Ben birtir myndband: Sjáðu þegar hann reynir við 120 kílóin

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hefur nú birt myndband af því þegar hann reynir við 120 kíló í bekkpressu.

Eins og Hringbraut greindi frá í morgun sagði Gísli Marteinn Baldursson sjónvarpsmaður að einhverjir efuðust um að Bjarni gæti lyft 120 kílóum í bekk eins og Bjarni hélt fram í viðtali við Brennsluna á FM957 á dögunum. Skoraði Gísli Marteinn á Bjarna að mæta til hans í Vikuna á RÚV og lyfta þessum umtöluðu 120 kílóum í vitna viðurvist.

Nú hefur Bjarni svarað kallinu og gott betur en það því í myndbandi á Twitter sést þegar Bjarni reynir við 120 kílóin og kemur þeim upp – með naumindum þó. Bjarni virðist því vera nokkuð hraustur, það geta að minnsta kosti ekki allir sagt að þeir taki 120 kíló í bekk og staðið við það.

Myndbandið af Bjarna má sjá hér að neðan: