Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður og formaður Viðreisnar, skiptust á nokkrum vel völdum orðum í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag.
Þorgerður steig í pontu og spurði Bjarna að því hvort hann deildi áhyggjum Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra um stöðu kvenna í Póllandi. Eins og kunnugt er hafa þingmenn úr nokkrum flokkum, Viðreisn meðal annars, lagt fram þingsályktunartillögu um aðgengi einstaklinga sem ferðast til Íslands að þungunarrofi.
Systurflokkur Sjálfstæðisflokksins
Þorgerður nefndi að stjórnlagadómstóll Póllands hefði nýlega komist að þeirri niðurstöðu að þungunarrof vegna fósturgalla stangaðist á við stjórnarskrá landsins. Þetta hefði gerst eftir að flokksmenn Laga og réttlætis hefðu rýnt dóminn og komið að sínum mönnum.
Þorgerður benti á að Lög og réttlæti væri systurflokkur Sjálfstæðisflokksins í blokk íhaldsflokka í Evrópu. Sagðist Þorgerður gera sér grein fyrir því að málið væri viðkvæmt innan Sjálfstæðisflokksins þar sem átta þingmenn flokksins greiddu atkvæði gegn þungunarrofi og stjórnarfrumvarpi heilbrigðisráðherra.
Spurði Þorgerður hvort Bjarni væri þeirrar skoðunar að konur eigi tilneyddar að ljúka meðgöngu þrátt fyrir að ljóst sé að barn muni ekki lifa það af eða töluverð áhætta geti fylgt því, bæði fyrir móður og barn.
Bjarni: „Þvílíkur þvættingur“
Bjarni virtist ekki mjög ánægður með fyrirspurn Þorgerðar.
„Virðulegi forseti. Ég átta mig ekki alveg á því hvað háttvirtur þingmaður er að fara hér. Til dæmis er vísað í það að nokkrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafi ekki stutt frumvarp til breytinga á reglum um þessi efni. Þá skulum við spyrja okkur hvers vegna það var, um hvað athugasemdir þingmannanna snerust. Snerust þær um það að hv. þingmenn vildu taka upp reglurnar sem er verið að vísa í að gildi í Póllandi? Verið er að gefa það í skyn hér. Þvílíkur þvættingur, þvílíkur málflutningur. Það er algerlega með ólíkindum að hlusta á þetta, þetta er einhver ömurlegasta tilraun sem ég hef hlustað á lengi til að tengja Sjálfstæðisflokkinn við eitthvert hneykslismál út í Evrópu.“
Bjarni sagði að honum fyndist reglurnar í Póllandi ekki vera til fyrirmyndar og og hann hefði áhyggjur af stöðu kvenna vegna þess.
„Ég held hins vegar að ef við lyftum aðeins höfðinu og litum víðar í kringum okkur í heiminum myndum við finna fjöldann allan af löndum þar sem staðan er jafn slæm eða verri. Hvað hefur það með Sjálfstæðisflokkinn að gera og atkvæðagreiðslu um mál heilbrigðisráðherra fyrr á þessu ári? Ég skil ekkert hvað er verið að fara.“
Rödd Íslands mikilvæg
Þorgerður steig aftur í pontu og virtist undrandi á svari Bjarna. „Virðulegi forseti. Ég held að hæstvirtur fjármálaráðherra hafi farið öfugu megin fram úr rúminu,“ sagði hún og bætti við að um einfalda spurningu hafi verið að ræða. Viðurkenndi hún að þetta tengdist því að um systurflokk Sjálfstæðisflokksins væri að ræða, þar væri til dæmis möguleiki fyrir flokkinn að beita sér fyrir því að réttindi kvenna væru virt víða um heim.
„Rödd Íslands skiptir máli, ekki síst á sviði jafnréttismála. Við höfum fram til þessa haft mikið að segja og þegar við tjáum okkur um jafnréttismál er hlustað. Þá skiptir máli hvaða afstöðu formaður stærsta flokksins, verandi í ríkisstjórn, hefur til þessa máls. Þetta tengist auðvitað því að afstaða formanns Sjálfstæðisflokksins var bara með þeim hætti. Það voru engin málefnaleg rök á sínum tíma að fækka vikunum úr 22 í 20, engin. Allir læknar lögðust gegn því.“
Aum og ömurleg tilraun
Bjarni steig öðru sinni í pontu og sagði að Þorgerði hefði ekkert gengið sérstaklega vel að koma að einfaldri spurningu.
„Hún leggur lykkju á leið sína til þess að draga inn í málið alls konar óskylda hluti. Í fyrsta lagi þá ætla ég að segja þetta um stöðu kvenna í Póllandi: Ég hef sömu áhyggjur og forsætisráðherra af þessari breytingu. Við getum rætt það. En háttvirtur þingmaður er að setja hér á dagskrá allan andskotann annan sem hefur ekkert með þetta mál að gera […] Virðulegi forseti. Ég biðst forláts en það hefur ekkert með málið að gera hvort Sjálfstæðisflokkurinn er í flokkasamstarfi á vettvangi Evrópusamvinnu með einhverjum flokkum og það þýði að hann fylgi sömu stefnu og þeir í öllum málaflokknum. Þetta er bara ekki boðleg nálgun. Þetta er bara aum og ömurleg tilraun til að koma höggi á Sjálfstæðisflokkinn út af einhverju sem er að gerast úti í Póllandi.“