Bjarni Ármannsson, fyrrverandi bankastjóri Glitnis, hefur gefið frá sér tilkynningu. Þar segir hann að eftir umfangsmikinn fréttaflutning af deilum hans við skattayfirvöld og málaferli síðastliðin tíu ár þætti sér vænt um að eftirtöldu verði komið á framfæri við fjölmiðla.
„Með úrskurði Hæstaréttar í gær (nr. 21/2022) var sakaskrá mín loksins hreinsuð. Dómurinn staðfesti það að mér hefði verið gerð tvöföld refsing, fyrst í skattamáli sem gert var upp að fullu og síðan í refsimáli vegna sömu mistaka við gerð skattframtala,“ segir Bjarni.
„Mannréttindadómstóll Evrópu úrskurðaði að sú málsmeðferð gengi í berhögg við Mannréttindasáttmála Evrópu og hefur Hæstiréttur nú staðfest það.
Ég fagna þessari niðurstöðu og því að réttlætið hafi sigrað að lokum. Það hlýtur hins vegar að teljast umhugsunarefni að opinbera kerfið hafi með öllum tiltækum ráðum eytt meira en áratug í afneitun sinni á hinu augljósa.“