Bjarn­heiður lætur Sigurð Inga heyra það: „Þetta eru víst svikin lof­orð!“

Bjarn­heiður Halls­dóttir, for­maður Sam­taka ferða­þjónustunnar, fer ekki fögrum orðum um Sigurð Inga Jóhanns­son, inn­viða­ráð­herra, í pistli sínum í Skaga­f­réttum.

„Það mætti halda að inn­viða­ráð­herra, Sigurður Ingi Jóhanns­son, hafi vitað af því þegar hann mætti í við­tal í Bítið á Bylgjunni í gær, að Elísa­bet Eng­lands­drottning myndi kveðja þessa jarð­vist síðar um daginn. Það þykir alla jafna hentugt að koma með um­deild og erfið mál fram í dags­ljósið, þegar vitað er að þau munu falla í skuggann af öðrum, sem taka meira rými í fjöl­miðlum,“ skrifar Bjarn­heiður í að­sendri grein í Skaga­f­réttum.

„Það liggur nú alveg ljóst fyrir að ríkis­stjórnin á­formar að hefja gjald­töku í Hval­fjarðar­göngum á nýjan leik, árið 2023. Þessi gjald­taka á að fjár­magna byggingu nýrra Hval­fjarðar­ganga. Á hversu löngum tíma liggur ekki fyrir. Gjald­taka mun síðan að öllum líkindum halda á­fram, bæði í nýju og gömlu göngunum.“

„Það eru fimm önnur verk­efni, sem einnig á að fjár­magna með gjald­töku á not­endur og það eru Sunda­braut, Ölfus­ár­brú og nýir vegir um Mýr­dal, Öxi og Horna­fjarðar­fljót. Hvort að gjald­taka fyrir þessar fram­kvæmdir fram­tíðarinnar á sömu­leiðis að hefjast árið 2023 er ó­ljóst – það er hvort það standi til að rukka veg­far­endur fyrir að aka í huganum yfir Sunda­braut sem enn er bara skrifuð í skýin, yfir ó­byggða brú eða um veg­spotta sem enn liggja bara á teikni­borðinu. Ekkert er minnst á gjald­töku í öðrum göngum landsins, sem þó voru reist fyrir al­manna­fé, eða með ríkis­á­byrgðum og ljóst er, að munu aldrei standa undir sér fjár­hags­lega.“

„Inn­viða­ráð­herra segir fyrir­hugaða gjald­töku í Hval­fjarðar­göngum ekki fela í sér svikin lof­orð. Við sem munum nokkra ára­tugi aftur í tímann vitum að það var á­vallt ætlunin að Hval­fjarðar­göng yrðu gjald­frjáls þegar fram­kvæmdin væri að fullu greidd upp og göngin af­hent ríkinu á silfur­fati. Nú á að breyta um að­ferða­fræði. Stjórn­völd eru í bullandi vand­ræðum með fjár­mögnun sam­göngu­mann­virkja, þar sem skattar og gjöld af elds­neyti munu fyrir­sjáan­lega skreppa saman með orku­skiptum bíla­flotans. Þá er borð­leggjandi að hefja gjald­töku, þar sem lík­legt er að hún verði skil­virk og á­bata­söm,“ skrifar Bjarn­heiður.

„Kannski verður raunin sú að við Skaga­menn þurfum á ferðum okkar til og frá höfuð­borginni frá og með næsta ári að greiða fyrir­fram fyrir tvær þjóð­hags­lega hag­kvæmar vega­fram­kvæmdir, sem sum okkar munu sjaldan eða aldrei koma til með að nota?

Stóra málið í þessu er það að Hval­fjarðar­göng eru eina sam­göngu­mann­virkið á landinu sem hefur verið að fullu fjár­magnað með not­enda­gjöldum. Því er al­gjör­lega fá­rán­legt og mjög ó­sann­gjarnt að taka upp gjald­töku ein­mitt þar. Við erum búin að borga fyrir þessi göng og það er alls ekki til of mikils ætlast að ríkið reki göngin orða­laust eins og önnur jarð­göng og sam­göngu­mann­virki.“

„Við vitum öll að fólk og fyrir­tæki á Akra­nesi og annars staðar á Vestur­landi hafa tekið á­kvarðanir sem varða bú­setu, at­vinnu, nám og fyrir­tækja­rekstur – þar sem gjald­frjáls Hval­fjarðar­göng hafa komið mikið við sögu. Gjald­taka í Hval­fjarðar­göngum á nýjan leik er því al­gjör for­sendu­brestur og svik við þetta fólk,“ skrifar Bjarn­heiður.

„Þessi nýja „að­ferða­fræði“ inn­viða­ráð­herra er að mínu mati al­gjör­lega út í hött. Það að ætla að hafa veg­far­endur dagsins í dag að fé­þúfu fyrir fram­kvæmdir fram­tíðarinnar er arfa­vit­laust. Eru ekki annars allir til í að borga í dag fyrir köku sem þeir fá kannski að éta eftir 10 ár?“

„Ef tekin verður á­kvörðun um að byggja ný Hval­fjarðar­göng, þá hljótum við að krefjast þess að þau verði fjár­mögnuð á annan hátt en fyrir­hugað er. Hér verðum við Skaga­menn og Vest­lendingar að standa í lappirnar, halda hags­munum okkar á lofti og mót­mæla þessum á­formum kröftug­lega!“

„Þessi nýja „að­ferða­fræði“ inn­viða­ráð­herra er að mínu mati al­gjör­lega út í hött. Það að ætla að hafa veg­far­endur dagsins í dag að fé­þúfu fyrir fram­kvæmdir fram­tíðarinnar er arfa­vit­laust. Eru ekki annars allir til í að borga í dag fyrir köku sem þeir fá kannski að éta eftir 10 ár?“

„Ef tekin verður á­kvörðun um að byggja ný Hval­fjarðar­göng, þá hljótum við að krefjast þess að þau verði fjár­mögnuð á annan hátt en fyrir­hugað er. Hér verðum við Skaga­menn og Vest­lendingar að standa í lappirnar, halda hags­munum okkar á lofti og mót­mæla þessum á­formum kröftug­lega!“ skrifar Bjarn­heiður að lokum.