Bjarni Jónsson, einn af stofnendum Siðmenntar og fyrrverandi framkvæmdastjóri lífsskoðunarfélagsins, lenti í miður skemmtilegri upplifun á föstudag þegar hann skellti sér í sund.
Bjarni sagði frá því í færslu á Facebook á föstudagskvöld að eftir sundið, nuddpottinn og gufubaðið hafi verið haldið í rakstur og sturtu áður en farið var í vinnu.
„Nema hvað. Þegar ég er að klæða mig, þar sem aðeins einn til viðbótar var í klefanum þá sé ég gamlan mann um 75 ára skjögra inn sem færði sig hægt en ákveðið í áttina til mín. Hann kom inn í röðina sem ég var að bauka við að klæða mig og hann bara nálgast,“ segir Bjarni og bætir við að maðurinn hafi stoppað þar sem aðeins skápur er á milli, eða um það bil 75 sentímetrar.
Bjarni segist hafa spurt manninn kurteisislega hvort hann gæti ekki haft aðeins meira pláss á milli þeirra til að uppfylla tveggja metra regluna. Bjarna var nokkuð brugðið þegar maðurinn svaraði:
„Þá kom það: “Haltu kjafti” – úpps “Takk fyrir kurteisina” sagði ég og kláraði að klæða mig.
Eitthvað var kallinn tæpur, föstudagsmorgunn og ekki útlit fyrir að allt bóluefnið skilaði sér eins og þríeykið lofaði. Ekki nema von að hann væri fúll út í mig.“