Bjarki Bjarnason, bæjarfulltrúi VG í Mosfellsbæ, er sár út í Rósu Björk Brynjólfsdóttur fyrir að ganga í þingflokk Samfylkingarinnar eftir að hafa sagt skilið við þingflokk VG.
Bjarki skrifar opið bréf til Rósu sem birt er í Fréttablaðinu í dag.
„Í íslenskri þingsögu hefur það gerst af og til að kjörnir fulltrúar segi sig úr þingflokki þegar þeir eiga ekki lengur samleið með honum af einhverjum ástæðum. Næstu spor þingmannanna eru íhugunarverð en þeir eiga þriggja kosta völ,“ segir Bjarki og nefnir að í fyrsta lagi geti þeir sagt af sér þingmennsku, í öðru lagi starfað utan þingflokka sem óháðir þingmenn og í þriðja lagi gengið í annan þingflokk.
„Þriðji kosturinn er sá versti að minni hyggju og eðlilegt að almenningur staldri við þegar þingmenn velja hann, líkt og þú hefur nú gert, því miður. Þingmenn komast til valda sem frambjóðendur ákveðins stjórnmálaafls og það orkar mjög tvímælis þegar þeir nýta það brautargengi til að ganga öðrum stjórnmálaflokki á hönd á því sama kjörtímabili.“
Bjarki fer ekki leynt með þá skoðun sína að hann telur Rósu Björk hafa farið yfir strikið með því að ganga í raðir Samfylkingarinnar.
„Mér finnst þessi ákvörðun þín mikil vanvirðing gagnvart kjósendum sem hafa stutt þig til valda og undarlegt að þú farir með það vald líkt og þína prívateign. Virðist svo vera að þú metir eigin framavonir hærra en trúnað við þá kjósendur sem lyftu þér til metorða. Ég óska þér alls hins besta á nýjum brautum en verð þó að árétta að með ákvörðun þinni ferðu langt yfir ákveðið strik í mínum huga. Orð líkt og „öflugur þingmaður“ og „víðsýn baráttukona fyrir mannréttindum“ missa nefnilega marks og fjúka út um gluggann þegar sá sami einstaklingur virðir ekki grundvallaratriði í mannlegum samskiptum.“