Biskup ætlar ekki að svipta hulunni af bréfinu til Davíðs

Biskupsstofa ætlar ekki að svipta hulunni af bréfi Agnesar M. Sigurðardóttur, biskups til Davíðs Þórs Jónssonar, sóknarprests í Laugarneskirkjum, þar sem biskup veitir prestinum formlega áminningu.

Vísir.is óskar eftir bréfinu en biskupsstofa neitar að verða við óskum fréttastofunnar og virðist þar með virða að vettugi upplýsingalög. Vísir hyggst senda úrskurðarnefnd um upplýsingamál erindi vegna málsins.

Davíð Þór hefur verið í deiglunni undanfarna daga fyrir harðvítuga gagnrýni sína í garð ríkisstjórnarinnar og þá sérstaklega Katrínar Jakobsdóttur og VG fyrir fyrirhugaðar fjöldabrottvísanir hælisleitenda og innflytjenda.

„Þinglið og ráðherrar VG eru ekki lengur bara meðsek um glæpi þessarar ríkisstjórnar gegn mannúð og góðu siðferði, þau eru einfaldlega sek eins og syndin. Það er sérstakur staður í helvíti fyrir fólk sem selur sál sína fyrir völd og vegtyllur,“ skrifaði Davíð Þór meðal annars í gagnrýni sinni sem varð til þess að hann var formlega áminntur af biskup.

Biskupsstofa hinsvegar vill ekki gefa upp hvernig bréfið er og í svari til Vísis segir Pétur G. Markan, að um sé að ræða starfsmannamál.

Pétur G. Markan biskupsritari segir í svari það vera mat Biskupsstofu að „upplýsingalögin eigi ekki lengur við um Þjóðkirkjuna. Jafnvel þó svo væri þá litum við svo á að um sé að ræða skjal sem ekki sé afhendingarskyld samkvæmt upplýsingalögum þar sem um starfsmannamál væri að ræða. Á grundvelli þessa afhendum við ekki formlegt tiltal sem sr. Davíð Þór fékk á dögunum og vísað er til,“ segir í svari Péturs biskupsritara.

Stangast á við úrskurðarnefnd

Fréttablaðið greindi frá því á síðasta ári frá svörum úrskurðarnefndar um upplýsingamál.

Nefndin segir að Þjóðkirkjan sem formlegur handhafi frmakvæmdavalds, heyri undir upplýsingalög eins og aðrir opinberir aðilar. Fréttablaðið hafði þá ítrekað reynt að afla upplýsinga um söluverð á hinu svokallaða Kirkjuhúsi sem stendur við Laugaveg 31.