Lögreglan á Vestfjörðum hafði hendur í hári manns á miðvikudag í síðustu viku, en sá var í annarlegu ástandi og var auk þess nágrönnum sínum til ama.
Í skeyti lögreglunnar kemur fram að maðurinn hafi skyndilega birst á svölum nágranna síns á Ísafirði. Maðurinn sagðist vera læstur úti og þyrfti að komast heim til sín. Maðurinn veittist svo að gestkomandi einstaklingi á sama heimili þegar hann var beðinn um að fara aftur í sína íbúð.
Í tilkynningu lögreglu um verkefni liðinnar viku kemur fram að maðurinn hafi ekki hlýtt fyrirmælum lögreglu þegar hún kom á vettvang og hrækti hann meðal annars í átt að lögreglumanni. Maðurinn var vistaður í fangaklefa um nóttina, en að sögn lögreglu voru aftur höfð afskipti af honum síðar í vikunni vegna áreitis við nágranna sína.