Birtist alls­ber í aug­lýsingu Nova gegn vilja sínum: „Nova þykir afar leitt að þátt­taka mannsins hafi valdið honum van­líðan“

Karl­maður sem birtist alls­nakinn í Allir úr- aug­lýsingu Nova telur á sér brotið enn hann segist hafa varið full­vissaður um að hann myndi ekki sjást koma nakinn fram. Þetta kemur fram í frétt Vísi en fjar­skipta­fyrir­tækið Nova harmar þennan mis­skilning.

Um er að ræða aug­lýsingu Nova sem vakti mikla at­hygli á sínum tíma fyrir að vera heldur djörf en fjöl­margir venju­legar Ís­lendingar birtust án klæða í aug­lýsingunni.

Málið er við­kvæmt og hefur tekið mikið á manninn sam­kvæmt lög­manni hans sem Vísir ræðir við. Maðurinn heldur því fram að hann hafi fengið skrif­legt að hann myndi ekki sjást nakinn á skjánum en svo fór ekki.

Sam­kvæmt Vísi sækist maðurinn eftir sjö milljónum í bætur. Fjar­skipta­fyrir­tækið Nova sendi frá sér yfir­lýsingu vegna málsins en maður einn er ekki að stefna Nova heldur þeim sem gerðu aug­lýsinguna.

„Nova þykir afar leitt að þátt­taka manns, sem ráðinn var til að koma fram í aug­lýsingu fyrir „Allir úr“-her­ferðina, hafi valdið honum van­líðan í kjöl­farið. Nova hefur lagt sig fram um að leggja and­legu heil­brigði lið og þegar upp­lýsingar bárust um málið þá voru gerðar ráð­stafanir til að stöðva frekari birtingar á aug­lýsingunni þar sem maðurinn kom fyrir,“ segir í yfir­lýsingu Nova á Vísi.