Alþingismenn fengu ríflegar kjarabætur í dag á meðan þúsundum var sagt upp störfum og tugþúsundir hafa misst vinnuna eða verið sett í hlutastörf. Ráðherrar og æðstu embættismenn fá sömu hækkun, eða 6,3%. Gunnar Smári Egilsson foringi Sósíalistaflokksins segir á Miðjunni:
„Daginn sem á fimmta þúsund manns misstu vinnuna, til viðbótar við þær tugþúsundir sem þegar höfðu misst vinnu og hrapað í tekjum, hækkaði stjórnmálastéttin eigin laun.“
Þá birtir Gunnar Smári skáldað samtal á milli Katrínar Jakobsdóttur, Bjarna Benediktssonar og Sigurðar Inga. Við gefum okkur það að örleikrit Gunnars Smára fari fram í forsætisbústaðnum. Það er svohljóðandi:
KATRÍN: „Vá, hvað við eigum þetta skilið.
BJARNI BEN: Ef ekki væri fyrir okkur væri þetta fólk kannski ekki á atvinnuleysisbótum. Það var ég sem reddaði þeim.
KATRÍN: Við erum best
SIGURÐUR INGI: Og ég líka!
KATRÍN: Já, einmitt, þú líka. Ég man eftir þér. KATRÍN AFTUR: Ég gleymi þér, en svo man ég alltaf eftir þér.