Sema Erla Serdar formaður Solaris sem fylgdist í kvöld með lögreglunni handtaka fimm manna fjölskyldu frá Írak sem verður vísað úr landi. „Þetta er ein svívirðilegasta aðgerð sem ég hef orðið vitni að, þó þær séu nú orðnar margar,“ segir hún.
Fréttablaðið hefur fjallað um málið í kvöld. Einn þeirra sem handtekin var í dag er fatlaður. Þá voru tvær stúlkur handteknar þegar þær voru á leiðinni úr skólanum.
Sema Erla hefur birt myndbönd af aðgerðum lögreglunnar, sem hún tók sjálf upp í kvöld. „Við horfðum upp á þetta í kvöld og ég er bara í sjokki. Ég á varla til orð yfir það sem ég var að horfa upp á.“ segir hún.
Nánar er fjallað um málið á vef Fréttablaðisns.