Ríkisendurskoðun gerir fjölmargar athugasemdir við sölu á 22,5 prósenta hlut ríkisins á Íslandsbanka. Skýrslan var birt í morgun en henni hafði verið lekið til fjölmiðla og átti upprunalega ekki að birtast fyrr en eftir að fulltrúar Ríkisendurskoðunar kynntu niðurstöðurnar fyrir stjórnsýslu og eftirlitsnefnd kl. 16:00 síðar í dag.
Fjallað er um skýrsluna á vef Fréttablaðsins.
„Áður stóð til að skýrslan yrði gerð opinber eftir fund Ríkisendurskoðunar með stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis síðar í dag. Ákvörðun um að flýta birtingu hennar var tekin eftir að ítarleg umfjöllun fjölmiðla um efni hennar hófst í gær,“ segir í tilkynningu á vef Ríkisendurskoðunar.
Helstu athugasemdirnar snúast að undirbúning, upplýsingamiðlun, framkvæmd sölunnar og ýmsar ákvarðanir sem teknar voru um að gefa afslátt á lokaverði og hvernig það hafi verið ákveðið hverjir væru hæfir fjárfestar.
Skýrsluna má lesa í heild sinni hér en í henni segir að ekki hafi verið lagt mat á hvort vinnubrögð umsjónaraðila söluferlisins, söluráðgjafa eða söluaðila hafi verið í samræmi við gildandi lög og reglur.
Síðar í dag, klukkan 16:00 verða niðurstöður skýrslunnar kynntar á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis. Þar verða fulltrúar Ríkisendurskoðunar til svara.
Í skýrslunni segir að meginmarkmið sölunnar og viðmið varðandi framkvæmd hafi sífellt verið á reiki.
„Hugtakanotkun og upplýsingagjöf í þeim gögnum sem Bankasýslan og fjármála- og efnahagsráðuneyti lögðu fyrir Alþingi voru ekki til þess fallin að draga upp skýra mynd af tilhögun söluferlisins. Þrátt fyrir reynslu og þekkingu starfsmanna og stjórnar Bankasýslunnar á sviði umsýslu og sölu á eignarhlutum ríkisins í fjármálafyrirtækjum bjó stofnunin ekki yfir reynslu af tilboðsfyrirkomulagi í aðdraganda sölunnar,“ segir í skýrslunni.
Skýrsluna má lesa í heild sinni með því að smella hér.