Flestir sem komnir eru yfir þrítugt, hvað þá eldri, eiga starf að baki sem þeir geta gengið í án þess að hafa mikið fyrir. Þráður þess efnis hefur vakið mikla athygli á Twitter þar sem margir þekktir, sem og óþekktir, hafa rifjað upp störf sem þeir kunna utan að.
Má þar nefna grínistann Bylgju Babýlóns sem vann við úthringingar hjá Gallup:
„Jú góða kvöldið, Bylgja heiti ég og hringi frá capacend gallup. Þú lentir hérna í úrtaki hjá okkur og ég var svona að velta því fyrir mér hvort ég mætti spurja þig nokkurra spurninga? Frábært. Áður en við byrjum ber mér að segja þér að þér ber hvorki skylda til að svara spurningalistanum í heild né einstaka spurningum.“
Leikkonan Unnur Eggertsdóttir sagði svo: „Jafningjafræðslan. Áfengi er ekki kúl fellow kids!“
Fréttamaðurinn Birta Björnsdóttir fór skrefinu lengra og rifjaði upp þegar hún var bakari á Domino‘s Pizza og birti myndband því til sönnunnar:
Bakari á Dominos. pic.twitter.com/eyHxb47D4a
— Birta Björnsdóttir (@birtabjoss) February 8, 2022