Kjaradeila Eflingar og Samtaka atvinnulífsins er enn í hörðum hnút og hefur SA boðað verkbann í næstu viku. Efling tilkynnti ekki um næstu runu verkfalla með lögmætum hætti og hefjast þau því ekki í næstu viku.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, sagði í dag að það hafi verið viljandi gert þar sem verkföllin væru óþarfi ef verkbannið tekur gildi. Stjórn Eflingar mun funda um stöðuna í kvöld.
Mikil leynd hefur verið um viðræðurnar og aðilar bundnir trúnaði en þó hefur lengi verið gengið ut frá því að Eflingarfélögum hefur verið boðið sömu launahækkanir og aðrir á almennum vinnumarkaði en SA hefur samið við næstum 90% launamanna.
SA birti hins vegar staðreyndir um kjaradeiluna á heimasíðu sinni í dag sem gefa smá innsýn inn í deiluna:
„Vissir þú að ....
.. nú þegar hefur verið gengið frá kjarasamningum fyrir um 90% allra á almennum vinnumarkaði?
... Eflingu hefur staðið og stendur til boða sambærilegur samningur og annað verkafólk um land allt hefur samþykkt með 86% atkvæða?
... Samtök atvinnulífsins hafa frá upphafi verið reiðubúin að aðlaga kjarasamning verkafólks á landsbyggðinni að áherslum Eflingar innan þess ramma sem þar var settur?
... í þeim samningi sem SA lögðu til grundvallar viðræðna við Eflingu hækka grunnlaun á mánuði um 35.000-52.258?
... þeir kjarasamningar sem hafa verið undirritaðir og rætt er um við Eflingu gilda í ríflega 11 mánuði frá deginum í dag?
... Efling hafnaði að leggja í dóm félagsmanna sinna miðlunartillögu sem þýðir samskonar launahækkanir og annað verkafólk á landinu hefur fengið og með afturvirkum launahækkunum til 1. nóvember 2022?
... Efling hafnaði því að taka þátt í viðræðum með öðrum sambærilegum stéttarfélögum og lagði fram kröfur sínar fjórum mánuðum síðar?
... Efling hefur á engum tímapunkti hvikað frá þeirri kröfu að starfsfólk á félagssvæði sínu fái hærri laun en einstaklingur í sama starfi hringinn í kringum um landið?
... ef gengið yrði að kröfum Eflingar væru laun verkafólks hærri í Kópavogi en í Hafnarfirði og að sama skapi hærri í Hveragerði en á Selfossi?
... Efling hefur hvatt atvinnurekendur og starfsfólk til að brjóta vinnulöggjöfina og hótað að standa fyrir mótmælum hjá þeim atvinnurekendum sem hlíta lögmætu verkbanni?“