Birta nöfn 411 Ís­lendinga í kín­verska gagna­lekanum

Morgun­blaðið birtir í dag nöfn allra þeirra Ís­lendinga sem finna má í Z­hen­hua-gagna­lekanum svo­kallaða. Um er að ræða lista með 411 nöfnum en líkur eru á að nöfnin séu allt að tíu sinnum fleiri.

Ó­víst er hvaða til­gangi nafna­listinn ná­kvæm­lega þjónar en látið hefur verið að því liggja að Kín­verjar noti hann til að þefa uppi hneykslis­mál um allan heim. Þetta kom fram í frétt ABC í Ástralíu sem RÚV fjallaði um á dögunum. Hafa sam­starfs­aðilar fyrir­tækisins meðal annars verið sagðar stofnanir á sviði varnar­mála og leyni­þjónustu.

Í frétt Morgun­blaðsins í dag kemur fram að á listanum séu nöfn á­hrifa­fólks í stjórn­málum, við­skiptum, og stjórn­kerfi. Þá má finna upp­lýsingar um fæðingar­dag, heimilis­fang og hjú­skapar­stöðu auk þess sem upp­lýsingum af sam­fé­lags­miðlum við­komandi hefur verið safnað saman.

Meðal þeirra nafna sem Morgun­blaðið birtir eru til dæmis: Auðunn Atla­son, Ást­ráður Haralds­son, Berg­vin Odds­son, Birkir Kristins­son, Geir H. Haarde, Hall­dóra Mogen­sen, Jón H.B. Snorra­son, Katrín Júlíus­dóttir, Rík­harður Daða­son og Óttarr Proppé.