Deila Eflingar og Samtaka atvinnulífsins er í hnút en verkföll hjá hótelstarfsmönnum og olíubilstjórar eru í fullum gangi. Verkbann á starfsmenn Eflingar hefst síðan 2.mars eftir að mikill meirihluti aðildarfélaga SA kaus með því.
Samtök atvinnulífsins hafa boðið Eflingarfólki sambærilegan samning og 90% af launamönnum hafa fengið hingað til en Sólveig Anna segir þann samning ekki nægilega góðan og vill fá betri samning. Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, segir ómögulegt að teygja sig lengra og gera betri samning við Eflingarfólk án þess að svíkja samninga við aðra launamenn.
Í tilkynningu frá SA segir að fullyrðingar formanns Eflingar um að þátttaka í vinnustöðvunum sé valkvæð og án stuðnings í lögum eru rangar.
Einstakir atvinnurekendur og starfsfólk sem verkbann beinist gegn hafa ekki val, frekar en í tilviki verkfalla um það hvort hlíta skuli lögmætu verkbanni. Slíkt felur í sér brot á 18. gr. vinnulöggjafarinnar. Túlkun Eflingar sem birtist á vef stéttarfélagsins 20. febrúar um að valkvætt sé að hlíta verkbanni og þar með verkfalli stenst því ekki skoðun og felur í sér þrýsting til brota á vinnulöggjöfinni.
Hér er staðreyndir sem SA birti um framkvæmd verkbannið í dag:
Hvað er verkbann?
Vinnustöðvun í skilningi vinnulöggjafarinnar (laga nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur) er verkbann atvinnurekenda og verkföll launþega.
Markmið verkbanns er að vinna að framgangi krafna atvinnurekenda í vinnudeilu með sama hætti og stéttarfélagi er heimilt að boða verkfall til að fylgja eftir kröfum sínum.
Verkbanni er m.a. ætlað að takmarka tjón af verkföllum, þar sem atvinnurekendur stöðva vinnu hjá félagsfólki stéttarfélaga, sem ekki er í verkfalli, til að auka þrýsting á viðsemjanda til samningsgerðar.
Til hverra nær verkbannsboðun SA?
Til þess að verkbannsboðun taki til starfsfólks, þarf viðkomandi að uppfylla öll eftirfarandi skilyrði:
- Vera félagsmaður í Eflingu stéttarfélagi
2. Starfa á félagssvæði Eflingar
3. Sinna starfi sem fellur undir aðalkjarasamning eða hótel- og veitingasamning SA og Eflingar
Sjá hér til hvaða starfa verkbannið tekur til.
Hvernig takmarkar verkbann tjón?
Fyrirséð er að verkfallsaðgerðir Eflingar muni leiða til verulegra rekstrartruflana og rekstrarstöðvunar í einhverjum tilvikum innan örfárra daga. Áhrifanna mun gæta um allt samfélagið. Áhrifin kunna meðal annars að vera fólgin í því að fólk eigi erfiðara um vik að koma sér til vinnu, framleiðsla og þjónusta hökti og/eða stöðvist, verslanir fá ekki vörur, rútuferðir falli niður, ferðamenn komi ekki til landsins o.s.frv. Skæruverkföll Eflingar eru því að skapa verulegt tjón fyrir atvinnulífið og samfélagið allt með eins litlum tilkostnaði og unnt væri fyrir Eflingu stéttarfélag.
Verkbann er neyðarúrræði atvinnurekanda til að bregðast við skæruverkföllum með það að markmiði að takmarka tjón atvinnulífsins og samfélagsins af verkföllum. Að sama skapi setur verkbann þrýsting á Eflingu til að ganga til viðræðna við SA um gerð kjarasamninga á sömu nótum og nánast öll önnur stéttarfélög á almenna vinnumarkaðnum hafa nú þegar samið um.
Hvernig fer atkvæðagreiðsla fram um verkbann?
Atkvæðagreiðsla SA um verkbann á félagsmenn Eflingar var almenn, leynileg atkvæðagreiðsla í skilningi 1. mgr. 15. gr. laga um stéttarfélög og vinnudeilur. Samkvæmt ákvæðinu er heimilt að viðhafa almenna atkvæðagreiðslu um takmarkaðar vinnustöðvanir sem ná til hluta félagsmanna.
Við atkvæðagreiðslu um verkbann ræður fjöldi atkvæða skv. gildandi atkvæðaskrá, sbr. 19. gr. samþykkta þessara. Sjá nánar XIII. kafla samþykkta SA um vinnustöðvanir .
Þarf að leggja niður störf í verkbanni?
Já, þeim starfsmönnum sem verkbann beinist gegn ber að leggja niður störf með sama hætti og starfsfólk sem fer í verkfall.
Í þessu tilfelli má enginn sem starfar eftir kjarasamningum SA og Eflingar mæta til vinnu nema að fenginni undanþágu frá framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífsins. Launagreiðslur falla niður yfir tímabilið sem verkbann stendur yfir líkt og í tilviki verkfalla.
Einstakir atvinnurekendur og starfsfólk sem verkbann beinast gegn hafa ekki val, frekari en í tilviki verkfalla um það hvort hlýtt sé lögmætu verkbanni. Slíkt felur í sér brot á 18. gr. vinnulöggjafarinnar. Túlkun Eflingar sem birtist á vef stéttarfélagsins 20. febrúar um að valkvætt sé að hlýta verkbanni og þar með verkfalli enda gilda sömu reglur um þessi úrræði stenst því ekki skoðun og felur í sér vítaverða hvatningu og þrýsting til brota á vinnulöggjöfinni.
Þarf ég að greina frá því hvort ég kaus með verkbanni?
Nei, um leynilega kosningu er að ræða og því engin skylda til að gefa upp hvort kosið var með eða á móti verkbanni, ekki frekar en starfsfólk sé skylt að gefa upp hvort það kaus með eða á móti verkfalli. Félagsmönnum sem berast fyrirspurnir í þessa veru frá Eflingu er því ekki skylt að gefa upp svar sitt.
Hvenær getur verkbann hafist?
Verkbann SA hefst fimmtudaginn 2. mars kl. 12:00. Samkvæmt lögum verður að tilkynna um vinnustöðvun með a.m.k. 7 sólarhringa fyrirvara til sáttasemjara og þeim sem verkbannið beinist aðallega gegn þ.e.a.s. Eflingu fyrir hönd félagsmanna sinna.
Er hægt að fresta verkbanni?
Já, með sama hætti og verkfalli. Hægt er að fresta boðaðri vinnustöðvun, einu sinni eða oftar, um allt að 28 sólarhringa samtals án samþykkis gagnaðila, enda sé frestunin kynnt honum með minnst þriggja sólarhringa fyrirvara.
Hversu víðtækt er verkbann?
Verkbann Samtaka atvinnulífsins sem tekur gildi kl. 12:00 2. mars n.k. að öllu óbreyttu nær til alls félagsfólks Eflingar sem starfar á félagssvæði Eflingar - stéttarfélags skv. aðalkjarasamning Samtaka atvinnulífsins og Eflingar – stéttarfélags og kjarasamningi Samtaka atvinnulífsins og Eflingar – stéttarfélags vegna veitinga-, gisti-, þjónustu- og greiðasölustaða, afþreyingarfyrirtækja og hliðstæðrar starfsemi.
Samtök atvinnurekenda sem hyggjast fara í verkbann ráða því hversu víðtækt verkbann er. Það getur t.d. beinst gegn félagsmönnum stéttarfélags í einu fyrirtæki. Verkbann getur enn fremur falist í því að allir sem vinna þau störf sem kjarasamningur stéttarfélagsins tekur til þurfi alfarið að leggja niður störf sín.
Er hægt að sækja um undanþágu frá verkbanni?
Framkvæmdastjórn SA mun veita undanþágur vegna nauðsynlegrar grunnþjónustu. Senda skal beiðni um undanþágu á netfangið [email protected] . Sniðmát að umsókn má nálagast hér .
Þegar hafa verið veittar undanþágur fyrir alla starfsemi tengist heilbrigðis- og öldrunarþjónustu, opinberri sem og einkarekinni sem og fyrir öll störf sem tengjast annarri grunnþjónustu, s.s. lögreglu, slökkviliði, sjúkraflutningum, björgunarsveitum, almannavörnum og menntastofnunum án sérstakra umsókna frá hlutaðeigandi aðilum. Jafnframt hafa verið veittar undanþágur fyrir þá aðila sem hafa fengið undanþágur hjá undanþágunefnd Eflingar.
Hverjir mega vinna í verkbanni og ganga í störf í verkbanni?
Um það gilda samsvarandi reglur og gilda um verkföll, sjá vef SA
Á að greiða starfsfólki laun í verkbanni?
Nei. Allar launagreiðslur og launatengd gjöld falla niður meðan verkbannið varir eins og í tilviki verkfalla. Sama gildir um greiðslu launa til starfsfólks í veikindum og orlofi.
Fær starfsfólk í verkbanni styrki?
Það ræðst af ákvörðun þess stéttarfélags sem starfsfólk á aðild að hvort það ákveði að bæta félagsfólki sínu sem verkbann beinist gegn tekjutap sitt að hluta eða að öllu leyti.
Kemur verkbann SA í veg fyrir að ég geti fellt starfsfólk af launaskrá?
Nei, þau fyrirtæki sem lenda í rekstrarstöðvun á næstu dögum vegna afleiðinga verkfallsaðgerða Eflingar geta fellt það starfsfólk sitt sem fellur ekki undir kjarasamninga SA og Eflingar sem verkfallsaðgerðir Eflingar og verkbann SA nær til af launaskrá skv. heimild í 3. gr. laga nr. 19/1979 vegna ófyrirsjáanlegra atvika (force majeure).
Fyrirséð er að verkfallsaðgerðir Eflingar muni leiða til rekstrarstöðvunar innan örfárra daga bæði í og út fyrir félagssvæði Eflingar. Umræddir atvinnurekendur hafa neyðarheimild til að takmarka tjón og koma í veg fyrir óþarfa uppsagnir vegna verkfallsaðgerða Eflingar að fella starfsfólk sitt í öðrum stéttarfélögum en Eflingu af launaskrá.
Þegar fyrirtæki ákveður að beita þessari lagaheimild, fellir starfsmenn af launaskrá, þá verður fyrirtækið að tilkynna það sérstaklega því starfsfólki sem fellt er af launaskrá vegna verkfallsins, sjá sniðmát .
Starfsfólk sem fellt er af launaskrá á rétt á að skrá sig atvinnulausa hjá Vinnumálastofnun og að fá greiddar tekjutengdar atvinnuleysisbætur eigi það rétt á atvinnuleysisbótum. Starfsfólk sem fellt er af launaskrá getur ráðið sig til annarra starfa sé þessari lagaheimild beitt eins og fram kemur í lagagreininni. Fyrirtæki sem beita heimildinni geta því misst starfsfólkið varanlega.
Félagsmenn eru hvattir til að leita til lögmanna Samtaka atvinnulífsins séu þeir í vafa um hvort heimilt sé að beita úrræðinu.
Fær starfsfólk í verkbanni greiðslur úr verkfallssjóði stéttarfélags?
Það ræðst af ákvörðun þess stéttarfélags sem starfsfólk á aðild að hvort það ákveði að bæta félagsfólki sínu sem verkbann beinist gegn tekjutap sitt að hluta eða að öllu leyti. Í tilviki yfirstandandi kjaradeilu Eflingar og SA hefur forysta Eflingar gefið út að hún hyggist ekki greiða félagsfólki sínu úr verkfallssjóði.