Birta dramatísk mynd­band af ó­veðrinu fyrir norðan

Ó­veður hefur gert Akur­eyringum lífið leitt síðustu daga. Dagurinn í gær ein­kenndist af miklum vindi og mikilli öldu­hæð.

Lög­reglan fyrir norðan hvatti báts­eig­endur til að huga að bátum sínum í höfninni í gær og var dagurinn vægast sagt á­huga­verður.

Youtu­be síðan Akur­eyri tók saman mynd­band sem sýnir bar­áttu heima­manna við veðrið í gær með afar dramatískri tón­list sem má sjá hér að neðan.