Birta bendir á magnaða staðreynd: Á sama tíma og Ítalir skoruðu gerðist þetta

Fjölmiðlakonan Birta Björnsdóttir, sem hefur til að mynda haldið úti hlaðvarpinu vinsæla Heimskviður, benti á ansi áhugaverða staðreynd á Twitter í dag.

Á meðan flestir Íslendingar voru líklega að horfa á leik íslenska kvennalandsliðsins við Ítalíu á EM í fótbolta, gerðist nefnilega svolítið merkilegt.

Líkt og alþjóð veit fór leikurinn 1-1. Íslendingar komust snemma yfir, en í seinni hálfleik jöfnuðu Ítalir metin og það var lokaniðurstaðan.

En Birta bendir á að í sömu andrá og ítalska liði skoraði, hafi forsætisráðherra Ítalíu, Mario Draghi, sagt af sér.

„Á nánast sömu mínútu og Ítalir jöfnuðu sagði forsætisráðherra Ítalíu af sér. Ég túlka það þannig að Mario Draghi sé eldheitur stuðningsmaður stelpnanna okkar.“ skrifar Birta á Twitter