Það er nokkuð ljóst að landsmenn fundu margir fyrir jarðskjálftunum sem riðu yfir á suðvesturhorni landsins nú á ellefta tímanum í morgun. Þegar þetta er skrifað hafa nokkrir skjálftar riðið yfir, alls fjórir og var sá stærsti 5,7 samkvæmt Veðurstofu Íslands.
Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans, segir á Facebook-síðu sinni að þetta hafi að líkindum verið mesti skjálfti sem hann hefur fundið fyrir. „Myndir duttu af veggjum og hlutir úr hillum,“ segir Björn Ingi. Gísli Tryggvason lögfræðingur segir að hann hafi verið á áttundu hæð í Kringlunni þegar skjálftarnir riðu yfir og það hafi verið svakalegt.
„Heldur betur hreyfing á landinu! Fannst eins og Spýtukofinn væri að fara eitthvað,“ segir Björn Birgisson en hann er búsettur í Grindavík og fann vel fyrir skjálftanum. Þar segir íbúi í Ólafsvík að hann hafi einnig fundið fyrir skjálftunum.
„Fann fyrir honum, sá stærsti sem ég hef upplifað lengi. Er uppá 5. hæð í Hafnarfirði og fannst eins og húsið sveiflaðist til,“ segir einn íbúi.
„Ég held þeir hafi verið 5-6 á Richter þessir tveir sem riðu yfir Rvk rétt áðan,“ segir Ólína Þorvarðardóttir, fyrrverandi þingmaður, á Facebook-síðu sinni. Ólína hefur rétt fyrir sér því samkvæmt mælingum Veðurstofunnar var öflugasti skjálftinn 5,7.
„Þá hef ég prófað að vera í lyftu í jarðskjálfta. Mjög spes,“ segir Ragnar Þór Pétursson, formaður Kennarasambands Íslands.