Birna Sigurbjörg Benediktsdóttir, 61 árs gömul ekkja, fékk heldur kaldar kveðjur frá Greiðslustofu lífeyrissjóðanna fyrir þessi jól.
Birnu brast bréf, dagsett um síðustu mánaðamót, þar sem henni var tilkynnt að makalífeyrisgreiðslur hennar falla niður á nýju ári.
Sjá einnig: Kristinn á 22 krónur á bankareikningnum fyrir jólin: „Svona er lífið í landi tækifæranna“
„Jólagjöfin mín frá Greiðslustofu lífeyrissjóðanna á meðan útvaldir fjármála-gamblarar leika sér með sjóðina okkar í misarðbærar fjárfestingar þá lýkur mínum ekknagreiðslum,“ segir Birna í færslu á Facebook-síðu sinni. Birna veitti Hringbraut góðfúslegt leyfi til að birta efni færslunnar sem hefur vakið talsverða athygli.
Í bréfinu segir orðrétt:
„Ágæti sjóðfélagi. Samkvæmt samþykktum lífeyrissjóðs þíns munu makalífeyrisgreiðslur til þín falla niður. Síðasta greiðsla verður vegna janúar næstkomandi.“
Maður Birnu vann við sjómennsku og störf henni tengdri alla sína ævi og greiddi alltaf í lífeyrissjóð.
„Ég sem ekkjan hans fékk fyrstu 2 árin fullar bætur, 120.000 á mánuði og næstu 3 ár 60.000,“ segir Birna sem er afar óhress með að að greiðslurnar falli niður eftir fimm ár.
„Að hugsa sér. Af öllu því sem hann greiddi í sjóðinn og greiðslurnar komu til mín í heil 5 ár, hallelúja! Ég þurfti að greiða jafn mikið af okkar skuldum og rekstri eignar okkar.“
Birna segir enn fremur að ef hún fengi að ráða þá myndi hún ekki greiða í það „svikabatterí“ sem lífeyrissjóðirnir eru.
„Ég vildi hafa val um það. Við fáum hvort eð er greitt frá TR ef engin lífeyrissjóður er til. Króna á móti krónu sér til þess hvort eð er,“ segir Birna sem sendir stjórnvöldum skýr skilaboð.
„Þessu þarf að breyta og ekki seinna en núna. Það nægir að missa maka sinn að maður þurfti ekki að ganga í gegnum svona óréttlæti og hreinlega þjófnað. Því ég er hörð á því að svona vinnubrögð eru það. Hversvegna fær ekkja/ekkill greitt mismunandi út úr sjóðunum? Til dæmis held ég að eftirlifandi maki ríkisstarfsmanns fái greitt út alla ævina. Afhverju? Ég kalla eftir RÉTTLÆTI NÚNA!!!!!“